Höggmyndagarðurinn Perlufesti og minningarathöfn um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur á 19. júní

Mannlíf Menning og listir

""

Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson  vígði í kvöld höggmyndagarð til minningar um upphafskonur íslenskrar höggmyndalistar við hátíðlega athöfn í suðvesturhorni Hljómskálagarðsins. Garðurinn hlaut nafnið Perlufesti að tillögu Gjörningaklúbbsins. Nafnið vísar til hringlaga afstöðu verkanna til hvers annars í garðinum, en undirstrikar einnig  að listakonurnar og verk þeirra eru sérstök hvert fyrir sig, líkt og perlur sem hafa verið þræddar upp á þráð.

Fjöldi fólks lagði leið sína í Hljómskálagarðinn til þess að vera við vígslu höggmyndagarðsins og létu ekki rigninguna á sig fá heldur klæddu sig eftir veðri.

Í garðinum eru höggmyndir eftir sex konur sem voru frumkvöðlar í höggmyndalist hér á landi, þær Gunnfríði Jónsdóttur (1889 - 1968), Nínu Sæmundson (1892 - 1962), Tove Ólafsson (1909 - 1992), Þorbjörgu Pálsdóttur (1919 - 2009), Ólöfu Pálsdóttur (1920) og Gerði Helgadóttur (1928 - 1975). Verkin sem um ræðir eru: Landnámskonan eftir Gunnfríði, Hafmeyjan eftir Nínu, Maður og kona eftir Tove, Piltur og stúlka eftir Þorbjörgu, Sonur eftir Ólöfu og Nafarinn eftir Gerði.

Listasafn Reykjavíkur hefur haft listræna stjórn og umsjón með verkefninu en garðurinn er minnisvarði um það mikilvæga frumherjastarf sem konurnar unnu á tímum þegar lítill skilningur var á að þær legðu fyrir sig listsköpun.

Höggmyndirnar koma frá opinberum- og einkaaðilum sem styrkja verkefnið. Listasafn Reykjavíkur á þrjár myndir og Listasafn Íslands leggur til tvær myndir. Þá hefur verslunarmiðstöðin Smáralind fært Reykjavíkurborg Hafmeyjuna að gjöf.

Vefsíðan www.perlufesti.is var jafnframt opnuð í dag í samstarfi við Gjörningaklúbbinn með upplýsingum og ljósmyndum um listakonurnar og verkin í garðinum. Þá frumflytur Gjörningaklúbburinn sex gjörninga tileinkaða hverri höggmynd á næstu misserum. Sjöundi og síðasti gjörningurinn verður fluttur þann 19. júní 2015.

Að lokinni vígslu var farið í sögugöngu í miðborginni undir leiðsögn Auðar Styrkársdóttur, forstöðukonu Kvennasögusafnisins. Fyrsti viðskomustaður var Hólavallakirkjugarður þar sem Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, lagði blómsveig að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur kvenréttindaskörungs. Í ræðu sinni sagði Sóley að kransinn væri fyrst og fremst til þess að heiðra minningu Bríetar.  „Kransinn er á leiði  Bríetar en hann er einnig til heiðurs öllum þeim konum sem tekið hafa slaginn fyrir okkur hinar og er hvatning um að halda baráttunni áfram uns fullkomnu jafnrétti er náð“.

Að lokinni athöfninni hélt gangan áfram um áhugaverða staði í miðborginni sem tengdir eru sögu kvenréttinda.