Að venju verður hin árlega Þrettándagleði Grafarvogsbúa haldin á brennustæðinu við Gufunesbæinn.
Hátíðarhöldin eru haldin þriðjudaginn 6. janúar 2015 og hefjast kl. 17:15 með kakó- og kyndlasölu.
Skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög við Hlöðuna.
Kl. 17:50 leggur blysför af stað upp að brennu og kveikt verður í brennunni kl. 18:00. Þá tekur við skemmtun á sviði.
Hátíðarhöldunum lýkur svo kl. 18:30 með skot tertusýningu í boði Íslenska gámafélagsins og Gufunesbæjar.
Hlökkum til að sjá ykkur