Gosmengun líkleg í dag

Velferð Umhverfi

""

Samkvæmt Veðurstofu Íslands er líklegt að gasmengun geti í dag og á morgun borist frá eldgosinu í Holuhrauni til höfuðborgarinnar og er möguleiki á að mengunar verði vart um tíma. Mikil gosmengun var síðastliðna nótt í Grafarvogi. 

Styrkur brennisteinsdíoxíðs í loftgæðamælistöð í Grafarvogi var klukkan 10:00 um 467 míkrógrömm á rúmmetra en í nótt fór styrkurinn hæst upp í 3.394 míkrógröm á rúmmetra. Líklegt er að gildi geti orðið há þar og annars staðar í Reykjavík. Heilbrigðiseftirlitið vísar í töflu á heimasíðu Almannavarna en þar kemur fram að ef styrkur fer yfir 600 míkrógrömm á rúmmetra er fólki ráðlagt að forðast áreynslu utandyra.  Fólki sem er viðkvæmt í lungum er ráðlagt að fylgjast sérstaklega vel með.

Á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur http://reykjavik.is/loftgaedi má sjá kort yfir staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík en þar er hægt að fylgjast með styrk brennisteinsdíoxíðs og annarra efna. Liturinn er grænn ef styrkurinn er undir heilsuverndarmörkum fyrir öll efni.  Fari styrkur einhvers efnanna yfir heilsuverndarmörk breytist liturinn í gulan eða rauðan. Sýndur er hæsti styrkur efna á hverjum tíma. Til að fá ítarlegri upplýsingar um loftgæði í Reykjavík má velja mælistað á kortinu. Styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2) er hægt að skoða í loftgæðafarstöð II, sem nú er staðsett við Völundarhús 1 í Grafarvogi, slóð: http://testapi.rvk.is/#/stodchart/04/regular/41/10-15-2014/10-16-2014 og loftgæðamælistöðinni við Grensásveg, slóð: http://testapi.rvk.is/#/stodchart/02/regular/41/10-15-2014/10-16-2014