Fjölmenni var í Gleðigöngunni í Reykjavík, en hún markar hápunkt Hinsegin daga. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og borgarfulltrúar létu sig ekki vanta í gönguna og fögnuðu fjölbreytileikanum.
Borgarbúar fjölmenntu í miðborgina þegar gleðigangan fór af stað um tvöleytið í sól og blíðviðri. Talið er að um áttatíu þúsund manns séu í miðborginni að njóta gleðinnar. Regnbogafánar prýða Ráðhúsið og margan manninn. Páll Óskar tónlistarmaður vakti að vanda mikla athygli, að þessu sinni með svanavagninum sínum. Miðborgin iðaði af lífi þegar gleðigöngunni lauk við Arnarhól og er óhætt að fullyrða að hún hafi verið afar glæsileg og tekist vel í góða veðrinu. Gleðigönginni lauk við Arnahól þar sem tónleikar eru haldnir.