Friðarsúlan tendruð á vorjafndægri

Umhverfi Skóli og frístund

""

Friðarsúlan mun lýsa upp kvöld­him­in­inn á vor­jafn­dægrum og vik­una þar á eftir, 20.-26. mars. Á þessum tíma er dagur­inn um það bil jafn­langur nótt­inni hvar sem er á jörðinni.

Boðið verður upp á Friðarsúlusiglingu á vegum Eldingar í til­efni dags­ins. Tímasetning tendr­un­ar­innar helg­ast af því að þann 20. mars 1969 gengu Yoko Ono og John Lennon í hjóna­band. Eins og frægt er eyddu þau hveiti­brauðs­dög­unum í  að mót­mæla stríð­inu í Víetnam, nakin í hjóna­sæng­inni. Það er því vel við hæfi að tendra Friðarsúluna og hugsa sér frið á þessum tímamótum.

Ljós Friðarsúlunnar sést vel á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en einnig má sjá hana í beinni útsend­ingu á http://imaginepeacetower.com/.

Brottfarir eru frá Ægis­garði 20.-26. mars kl. 21:00.

Verð fyrir ferju­sigl­ingu og leið­sögn

– Fullorðnir 5.500 kr.

– Börn 7–15 ára 2.750 kr.*

– Börn 0–6 ára 0 kr.*

*í fylgd með fullorðnum

Bókanir og frek­ari upp­lýs­ingar má nálg­ast í síma 533 5055 eða með því að senda tölvu­póst á videy@elding.is