Friðarsúlan mun lýsa upp kvöldhimininn á vorjafndægrum og vikuna þar á eftir, 20.-26. mars. Á þessum tíma er dagurinn um það bil jafnlangur nóttinni hvar sem er á jörðinni.
Boðið verður upp á Friðarsúlusiglingu á vegum Eldingar í tilefni dagsins. Tímasetning tendrunarinnar helgast af því að þann 20. mars 1969 gengu Yoko Ono og John Lennon í hjónaband. Eins og frægt er eyddu þau hveitibrauðsdögunum í að mótmæla stríðinu í Víetnam, nakin í hjónasænginni. Það er því vel við hæfi að tendra Friðarsúluna og hugsa sér frið á þessum tímamótum.
Ljós Friðarsúlunnar sést vel á höfuðborgarsvæðinu en einnig má sjá hana í beinni útsendingu á http://imaginepeacetower.com/.
Brottfarir eru frá Ægisgarði 20.-26. mars kl. 21:00.
Verð fyrir ferjusiglingu og leiðsögn
– Fullorðnir 5.500 kr.
– Börn 7–15 ára 2.750 kr.*
– Börn 0–6 ára 0 kr.*
*í fylgd með fullorðnum
Bókanir og frekari upplýsingar má nálgast í síma 533 5055 eða með því að senda tölvupóst á videy@elding.is