Fræðsludagskrá Reykjavík - iðandi af lífi fyrir sumarið 2014 er komin út.

Umhverfi Íþróttir og útivist

""

Lífríki borgarinnar skartar sínu fegursta á sumrin - gróðurinn dafnar og blómstrar, fuglarnir syngja, flugurnar suða og allir krókar og kimar iða af lífi.

Til að fagna og vekja athygli á þessu auðuga og áhugaverða lífríki sem deilir með okkur borginni mun Reykjavík - iðandi af lífi bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega fræðsludagskrá í allt sumar. 

Meðal þess sem verður í boði er fuglaskoðun, plöntuskoðun, smádýraskoðun í ferskvatni og fræðsla um friðlýst svæði í borginni. Þá verður gestum kennt að greina plöntur og smádýr. Einnig verða í boði fræðsluviðburðir á ensku fyrir erlenda gesti t.d. um náttúrufar Viðeyjar og fuglalífið við Tjörnina.

Reykjavík – iðandi af lífi er fræðsluátak um líffræðilega fjölbreytni borgarinnar og er á vegum umhverfis – og skipulagssviðs Reykjavíkur. Boðið eru upp á reglulega fræðsluviðburði og einnig er unnið fræðsluefni t.d. bæklingar og fræðsluskilti. Umsjónarmaður fræðsluátaksins er Snorri Sigurðsson, líffræðingur (snorri.sigurdsson@reykjavik.is).

Fræðsludagskrána má nálgast hér sem og á www.reykjavik.is/idandi. Þá má benda á facebook-síðuna þar sem reglulega birtist fróðleikur um lífríkið í borginni sem og allar upplýsingar um viðburði.