Síðastliðinn föstudag var lestrarvefurinn www.allirlesa.is, vettvangur landsleiks í lestri sem hefst föstudaginn 17. október, opnaður við hátíðlega athöfn á BSÍ. Móttökurnar hafa verið vonum framar, og nú þegar hafa yfir hundrað lið skráð sig á vefinn.
Það má búast við spennandi keppni, en Allir lesa er liðakeppni í lestri, með svipuðu fyrirkomulagi og Hjólað í vinnuna, sem flestir ættu að þekkja. Keppt er í því hvaða lið ver mestum tíma í lestur, að meðaltali. Ekki skiptir máli hversu mikið er lesið, heldur hversu lengi.
Vinnustaðir skora hver á annan
Keppnin skiptist í þrjá flokka, vinnustaðaflokk, skólaflokk og opinn flokk. Skólar landsins koma nú þegar sterkir inn í liðaskráningu, og vinnustaðirnir eru ekki síst að taka við sér. Það er greinilegt að það verður hörð barátta um það hvaða vinnustaður stendur uppi sem best lesni vinnustaður landsins að keppni lokinni, en úrslit munu liggja fyrir þann 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu.
Nú þegar eru vinnustaðir farnir að skora hver á annan, og bókasöfnin hafa sett tóninn í þeim efnum. Þess verður væntanlega stutt að bíða að áskoranirnar fljúgi um alla geira atvinnulífsins. Auk skóla og vinnustaða geta hvers kyns félög, leshringir, saumaklúbbar og aðrir skráð lið, en ekki er nauðsynlegt að allt liðið lesi sömu bók – í raun er algjörlega opið hvaða bækur eru lesnar og á hvaða formi.
Hundruð klukkustunda skráðar nú þegar
Liðakeppnin hefst, eins og áður sagði, næstkomandi föstudag, og nú er upplagt að safna í lið og skrá sig, svo allir séu tilbúnir þegar leikurinn fer í gang. Nú þegar er búið að skrá nokkur hundruð klukkutíma af lestri inn á síðuna, en þótt það sem nú er skráð inn á vefinn gildi ekki í keppninni er það vistað í persónulega lestrardagbók hvers og eins, sem verður svo skemmtilegt verkfæri allt árið, óháð keppninni.
http://www.facebook.com/allirlesa
http://www.twitter.com/allirlesa
http://www.instagram.com/allirlesa