Fjölgreindaleikar í Háteigsskóla

Skóli og frístund

""

Líf og fjör er í Háteigsskóla á árlegum Ólafsdögum en þá er hefðbundið skólastarf brotið upp í tvo daga með fjölgreindaleikum.

Að þessu sinni var öllum nemendum á aldrinum 6-15 ára skipt upp í þrjátíu blandaða hópa sem leystu fjölbreytileg verkefni hugsuð út frá fjölgreindakenningum Gardners.  

Fjölgreindaleikar fara þannig fram að útbúin eru margvísleg verkefni sem nemendur fá 7 mínútur til að leysa. Í hverjum hópi eru nemendur á aldrinum 6 til 15 ára og gæta þeir eldri hinna yngri á meðan á leikunum stendur.

Fjölgreindakenning Gardners gengur út að hver og einn búi yfir mörgum greindum og sé frá náttúrunnar hendi missterkur í einstökum greindum. Gardner hefur skilgreint 8. greindir: málgreind, rök- og stærðfræðigreind, rýmisgreind, tónlistargreind, líkams- og hreyfigreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingargreind og umhverfisgreind. Þannig telur Gardner mikilvægt að skólastarfið efli allir greindir og að námsframboðið sé fjölbreytt til að koma til móts við sérhvern nemanda. 

Nemendur í Háteigsskóla létu reyna á hin ýmsu greindarsvið í dag og var m.a. unnið með orð og ljóðasmíð, form, hreyfingu, rökhugsun, tölur, dans, slökun og ekki síst samskipti. Allir nemendur unnu einbeittir á hverjum stað í 7 mínútur, hvort sem þeir voru að taka viðtal, púsla, sauma, tefla eða slaka á, og héldu svo áhugasamir áfram á næsta stað til að takast á við nýjar áskoranir og kanna styrkleika sína. 

Ólafsdagar eru haldnir til minningar um Ólaf Guðmundsson sem var um árabil náttúrufræðikennari við Háteigsskóla.