Filmunámskeið í Nýló

Velferð Mannlíf

""

Nýlistasafnið flutti nýlega í Breiðholtið og býður nú upp á athyglisvert námskeið. Þriðjudaginn 4. nóvember verður Rebecca Erin Moran með filmunámskeið í Nýló, Völvufelli 13-21, milli kl. 18.00-21.00. Námskeiðið er fyrir fullorðna, en stefnt er að því að halda samskonar námskeið fyrir börn í framtíðinni. 

Rebecca mun sýna hvernig hægt er að mála, teikna og vinna með filmuna og gera kvikmynd án þess að taka upp. Þátttökugjald er 2.500 krónur. Allir velkomnir á meðan pláss leyfir!