Náum áttum, forvarnahópurinn, heldur morgunverðarfund á Grand hótel miðvikudaginn 22. janúar og mun fundurinn að þessu sinni fjalla um brottfall úr framhaldsskólum.
Á fundinum er sjónum beint að því hvar við stöndum varðandi brottfall nemenda, hvað segja tölur, hvaða úrræði eru til staðar, virkni þeirra og hvaða úrræða er þörf.
Eftirtaldir verða með framsöguerindi
- Kristrún Birgisdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, segir frá rannsókn um ástæður fyrir brotthvarfi nemenda úr íslenskum framhaldsskólum árið 2013.
- Magnús Þorkelsson, skólameistari Flensborgarskóla, heldur erindi undir yfirskriftinni "Hvenær hættir maður í skóla og hvenær hættir maður ekki í skóla?"
- Þorbjörn Jensen, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, flytur erindi sem hann kallar "Tækifæri á hliðarlínunni - inná brautina aftur"
Fundarstjóri verður Salbjörg Bjarnadóttir og mun hún stjórna umræðum eftir að erindi hafa verið flutt. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2000 krónur en innifalið í því er morgunverður.