Reykjavíkurborg hefur gert samning um kaup á allt að tólf metanknúnum sorphirðubílum. Fyrstu fjórir bílarnir verða afhentir í október og frekari pantanir munu ráðast af endurnýjunarþörf flotans.
Þrír af nýju bílunum eru með tvískiptum sorpkassa þannig að hægt er að sækja tvo flokka af úrgangi samtímis. Sá fjórði er með krana sem gerir m.a. kleift að hífa upp niðurgrafna gáma og þar sem aðkoma er þröng og erfitt að komast að með annars konar bílum. Ráðgert er að koma fyrir niðurgröfnum sorpgámum á nýjum byggingasvæðum svo sem í Vesturbugt og á Valssvæðinu. Stórir niðurgrafnir gámar auðvelda sorphirðu og gera hana skilvirkari sérstaklega í þéttri byggð. Kraninn gerir borginni þannig mögulegt að bjóða íbúum Reykjavíkur nýjar lausnir í stað hefðbundinna tunna.
„Það er mikið hagræði af þessum bílum, bæði hvað varðar vinnulag og umhverfismál,“ segir Guðmundur Benedikt Friðriksson skrifstofustjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði, „við þurfum ekki að senda tvo bíla í hverja götu heldur getur sami bíllinn tekið blandaðan úrgang og pappír í tvískipt hólfið.“
Kröfur til sorpbíla sem boðnir voru út taka mið af þörfum Sorphirðu Reykjavíkurborgar, stefnu borgarinnar um vistvænar samgöngur og aukna flokkun úrgangs og skil til endurvinnslu. Bílarnir uppfylla Euro 6 staðalinn sem er nýjasti og strangasti umhverfisstaðalinn um mengunarefni í útblæstri bíla. Þá er gott pláss í húsum þeirra svo vel fari um sorphirðufólk borgarinnar.
Reykjavíkurborg greiðir 217 milljónir króna fyrir fjóra bíla en inni í verðinu er þjónustuviðhald næstu þrjú ár. Hlutskarpast fyrirtækja í útboði var Klettur ehf. Var samningur við fyrirtækið undirritaður föstudaginn 2. maí. Gert er ráð fyrir því að nýju bílarnir verði komnir á götuna og þar með fulla notkun í október.