Borgarstjórn samþykkir skipun starfshóps um styttingu vinnudags

Stjórnsýsla Velferð

""
Borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur hefur samþykkti  til­lögu Vinstri grænna um að setja á lagg­irn­ar starfs­hóp með það að mark­miði að út­færa til­rauna­verk­efni um stytt­ingu vinnu­dags án launa­skerðing­ar. 
 
Mark­miðið með verk­efn­inu verður að kanna áhrif­in á heilsu, vellíðan, starfs­anda og þjón­ust­una, bæði með til­liti til gæða og hag­kvæmni.
 
Í til­lög­unni er  gert ráð fyr­ir að val­inn verði staður inn­an borg­ar­kerf­is­ins á sviði vel­ferðar eða fræðslu þar sem starfs­fólk vinni und­ir miklu álagi.
 
Borg­ar­rit­ara er falið að skipa starfs­hóp­inn, en í hon­um verður fólk með sér­fræðiþekk­ingu á sviði vinnu­vernd­ar, lýðheilsu og mannauðsmá­la, auk kjör­inna full­trúa. Þegar starfsstaður hef­ur verið ákveðinn, verður svo haft sam­ráð við full­trúa viðkom­andi stétt­ar­fé­laga um út­færslu. Starfs­hópn­um er ætlað að skila til­lögu um starfsstað og út­færslu fyr­ir 1. októ­ber nk.