Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkti tillögu Vinstri grænna um að setja á laggirnar starfshóp með það að markmiði að útfæra tilraunaverkefni um styttingu vinnudags án launaskerðingar.
Markmiðið með verkefninu verður að kanna áhrifin á heilsu, vellíðan, starfsanda og þjónustuna, bæði með tilliti til gæða og hagkvæmni.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að valinn verði staður innan borgarkerfisins á sviði velferðar eða fræðslu þar sem starfsfólk vinni undir miklu álagi.
Borgarritara er falið að skipa starfshópinn, en í honum verður fólk með sérfræðiþekkingu á sviði vinnuverndar, lýðheilsu og mannauðsmála, auk kjörinna fulltrúa. Þegar starfsstaður hefur verið ákveðinn, verður svo haft samráð við fulltrúa viðkomandi stéttarfélaga um útfærslu. Starfshópnum er ætlað að skila tillögu um starfsstað og útfærslu fyrir 1. október nk.