Borgarstjóri ræsir hjólreiðakeppni og setur Reykjavík Safarí gönguna

Menning og listir Mannréttindi

""

Dagur B. Eggertsson borgarstóri hafði í nógu að snúast í gær þegar hann ræsti hjólreiðakeppnina Alvogen Midnight Time Trial og heilsaði upp á göngufólk sem tók þátt í Reykjavík Safarí.

Alvogen Midnight Time Trial var ræst klukkan 19.00 síðdegis í gær og tóku eitthundrað hjólreiðamenn og konur þátt í keppninni. Þetta var æsi spennandi keppni þar sem keppt var um titilinn Hraðasti Hjólreiðamaður Íslands 2014.

Tveir keppendur komu erlendis frá, þau Hanka Kupfernagel sem er frægur hjólreiðamaður og hefur hlotið silfurverðlaun á Ólympíuleikum. Þá mun Þjóðverjinn Richard Geng einnig keppa á mótinu en hann er fyrrum atvinnumaður í hjólreiðum.

Það var mikill erill við startið. Áhorfendur fylgdust spenntir með og hjólreiðamennirnir voru komnir í gírinn og biðu eftir að fara af stað. Borgarstjóri startaði fyrsta keppandanum sem að þessu sinni var Sigríður Bryndís Stefánsdóttir. Keppendur hjóluðu eftir Sæbraut að gatnamótum við Laugarnesveg og til baka að endamarki við Hörpu.

Allur ágóði af keppninni rann til UNICEF til styrktar börnum í Suður Súdan.

Að loknu startinu fór borgarstjóri á Borgarbókasafnið þar sem hann ávarpaði göngumenn sem voru að fara í Reykjavík Safarí gönguferð. Reykjavík Safarí sá dagsins ljós árið 2008 og eitt af markmiðum göngunnar er að opna dyrnar að menningarlífi borgarinnar fyrir innflytjendum með sérstakri áherslu á söfn borgarinnar, Listasafnið, Borgarsögusafnið og Borgarbókasafnið. Auk þess var kynning á starfi Bókmenntaborgarinnar. Sex túlkar túlkuðu á ensku, frönsku, pólsku, víetnömsku, arabísku og íslensku. Að lokinni göngu var svo gestum boðið upp á hressingu og Sirkus Íslands sýndi kúnstir sínar sem vöktu mikla lukku viðstaddra.