Borgarstjóri heimsækir Þorrasel

Velferð Mannlíf

""

Jón Gnarr borgarstjóri heimsótti Þorrasel við Þorragötu í gær. Í Þorraseli er starfrækt dagvist fyrir aldraða sem búa í heimahúsum og er boðið upp á tómstundaiðju, léttar leikfimiæfingar, fæði, hvíldaraðstöðu og aðstoð við böðun. 

Fjöldi fólks var saman komin í Þorraseli í gærmorgun þegar Jón Gnarr borgarstjóri kom í heimsókn. Konurnar sátu við hannyrðir en karlarnir sátu saman í hópum og spjölluðu, lásu dagblöðin eða voru að spila á spil.

Dagvistin við Þorrasel er fyrir einstaklinga sem þurfa félagsskap, hvatningu, eftirlit og aðstoð við athafnir daglegs lífs.  Markmiðið með þjónustunni er að rjúfa félagslega einangrun aldraða og stuðla að því að þeir geti búið lengur heima. Í dagvist er boðið upp á tómstundaiðju, leikfimi og samveru. Gestir dagvistar eru sóttir að morgni og ekið heim síðdegis.

Borgarstjóri spjallaði við gesti og skoðaði handverk sem verið var að vinna við. Þá skoraði einn gestanna hún Kristín Sveinsdóttir á borgarstjóra í Boccia. Skipt var í tvö lið, Jón Gnarr, borgarstjóri, Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra og Heiða Kristín Helgadóttir í öðru liðinu. Í hinu liðinu voru allt gestir í Þorraseli þau Kristín, Unnur Guðmundsdóttir og Benedikt Þormóðsson. Allir fylgdust spenntir með en Unnur, Kristín og Benedikt fóru með sigur af hólmi.

Að lokinni keppni var boðið upp á kaffi og rjómapönnukökur.