Síðastliðinn fimmtudag 27. mars mættu vaskar konur starfsmenn við Þjónustuíbúðirnar á Dalbraut 27 í höfuðstöðvar Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð og afhendu félaginu 100.000 krónur. Peningarnir söfnuðust í starfsmannabingói sem haldið var 6. febrúar.
Tilefnið var að gera eitthvað skemmtilegt saman en um leið að láta gott af sér leiða. Er þetta í annað sinn sem starfsmenn efna til þessháttar bingós og naut Krabbameinsfélagið einnig góðs af í fyrra skiptið. Andrea Þórðardóttir fyrrverandi forstöðumaður í Félagsmiðstöðvarinnar í Hraunbæ 105 stjórnaði bingóinu af röggsemi enda vön kona þar á ferð. Á myndinni eru frá vinstri Gunnjóna Una Guðmundsdóttir og Ólöf María Jóhannsdóttir hjá Krabbameinsfélaginu sem veittu gjöfinni viðtöku og Sesselja Guðmundsdóttir, Helga Haraldsdóttir, Arndís Sigurbjörnsdóttir og Friðbjörg Dröfn Magnúsdóttir starfsmenn Dalbrautar 27 sem afhendu gjöfina fyrir hönd starfsmanna. Fjöldi fyrirtækja gaf vinninga og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir.