Reykjavíkurráð ungmenna fundar með borgarstjórn í dag og leggur fram átta tillögur um það sem það telur að betur megi fara í borginni.
Í dag, 25. mars, fundar Reykjavíkurráð ungmenna með borgarstjórn á opnum fundi í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Til umfjöllunar eru tillögur ungmenna um það sem þau telja að megi betur fara í borginni. Fundurinn hefst kl. 15 og verður sendur út.
Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og er þessi fundur sá þrettándi í röðinni. Að þessu sinni verða lagðar fram 8 tillögur í borgarstjórn sem flestar snúa að skóla- og frístundamálum, s.s. um aukið símat í grunnskólanum, battavöll í Vesturbæ og betri aðstöðu fyrir frístundastarf ungs fólks 16 ára og eldri í hverfum borgarinnar. Jafnframt er lagt til að skýrara verklag verði mótað um meðferð og afgreiðslu á þeim tillögum sem Reykjavíkurráð ungmenna leggur fyrir borgarstjórn ár hvert.
Í liðinni viku fluttu fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna erindi á alþjóðlegri ráðstefnu um forvarnarmál í Reykjavík, Cities for Youth, og framundan er þátttaka þeirra í fundum skóla- og frístundaráðs sem hefur samþykkt að Reykjavíkurráðið fái þar áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt.
Markmið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna er m.a. að skapa vettvang fyrir ungmenni yngri en 18 ára til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum. Í starfi sínu í vetur sem og síðastliðin ár hafa ungmennaráðin fjallað um fjölmörg málefni og tekið þátt í ýmsum verkefnum sem fulltrúar ungs fólks í Reykjavík. Reykjavíkurráðið er samráðsvettvangur allra ungmennaráða í borginni.
Sjá yfirlit yfir tillögur Reykjavíkurráðs til borgarstjórnar.
Meira um Reykjavíkurráð ungmenna.