Auglýst er eftir umsóknum vegna atvinnuverkefna fatlaðs fólks

Velferð Mannréttindi

""

Um er að ræða styrktarsjóð sem úthlutað verður úr í fyrsta sinn á árinu 2014. Markmið styrkveitinganna er að fjölga atvinnutækifærum fólks með fötlun og stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir hópinn.

Forsendur styrkveitinga eru eftirfarandi:

  • Verkefnið skal fela í sér atvinnusköpun fyrir fólk með fötlun og skulu að lágmarki helmingur starfsmanna/þátttakenda vera fólk með fötlun.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri og vera að lágmarki tveir.
  • Verkefni sem fela i sér nýnæmi í atvinnusköpun fyrir fatlað fólk njóta forgangs.
  • Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsóknum:
  • Útfyllt umsóknareyðublað.
  • Lýsing á viðskiptahugmynd og markmiðum.
  • Rekstraráætlun sem og kostnaðar- og tekjuáætlun.
  • Hámarksstyrkur er að jafnaði kr. 2.000.000.
  • Aðeins er hægt er að sækja um styrk fyrir helming af heildarkostnaði verkefnis og því þarf að sýna fram á eigið mótframlag t.d. í  formi  vinnuframlags.
  • Verkefni þarf að hefjast á árinu 2014.
  • Styrkur skal að jafnaði vera greiddur út í tveimur áföngum gegn skilum á áfangaskýrslu og lokaskýrslu.
  • Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga.
  • Styrkirnir eru ætlaðir einstaklingum og fyrirtækjum sem og hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.

Umsóknafrestur er til 1. júlí n.k. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til athugunar.

Umsóknir skulu metnar með hliðsjón af

  • markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð,
  • hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf,
  • hvort unnt sé að meta framvindu verksins,
  • hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur,
  • væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi,
  • fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn.

Styrkþegum er skylt að skila greinargerð um ráðstöfun styrkfjár fyrir lok ráðstöfunarárs.

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að rifta samningum, afturkalla styrkloforð og/eða krefjast endurgreiðslu ef sannanlega er um forsendubrest eða vanefndir að ræða af hálfu styrkþega.

Umsóknareyðublað.

Nánari upplýsingar veitir Jóna Vigdís í síma 411 4153 eða í gegnum netfangið jvk@reykjavik.is