Móðurlaus andarungi sem heldur til á tjörninni við Ráðhús Reykjavíkur sýnir mikla seiglu í lífsbaráttunni, en ferðamenn og aðrir sem séð hafa til hans vilja koma honum til bjargar.
Um síðustu helgi sáust sex umkomulausir andarungar á róli við Ráðhús Reykjavíkur en engin andarmamma nálæg. Ekki er vitað hvað varð um fimm af þessum ungum, en sá síðasti heldur nú til í litlu tjörninni fyrir utan ráðhúsið og virðist hinn sprækasti.
Borgarbúar sem og ferðamenn sem hafa komið í ráðhúsið hafa lýst yfir miklum áhyggjum af móðurlausa unganum. Starfsmenn ráðhússins eru líka uggandi og hafa þeir farið í tvær björgunaraðgerðir sem þó hafa mislukkast, því ungi litli lætur sig jafnan hverfa undir mosavegg ef einhver reynir að nálgast hann. Heyrst hefur að þriðja björgunaraðgerðin sé í undirbúningi og eru áform um að koma móðurlausa unganum í Húsdýragarðinn ef takast skyldi að ná honum.
Rétt er að minna á að ekki má gefa öndunum í Tjörninni brauð á þessum árstíma því slíkt dregur að sílamáfinn sem einmitt kokgleypir varnarlausa andarunga.