Almenningsbókasafn í Norðlingaskóla

Skóli og frístund Menning og listir

""

Samrekið almenningsbókasafn og skólabókasafn verður rekið í Norðlingaskóla næstu þrjú árin. Samningur um slíkt  tilraunaverkefni á milli Borgarbókasafns Reykjavíkur og Norðlingaskóla hefur verið samþykktur af skóla- og frístundaráði og menningar- og ferðamálaráði borgarinnar

Markmiðið er að bæta þjónustu við nemendur Norðlingaskóla, leikskólabörn og aðra íbúa í Norðlingaholti og efla jafnframt hlut skólans sem miðstöðvar menningar- og tómstundastarfs í hverfinu.

Safnið verður opið alla virka daga og skipta skóla- og frístundasvið og menningar- og ferðamálasvið borgarinnar með sér kostnaði við aðföng til safnsins og rekstur. Stofnuð verður verkefnisstjórn sem á að skila árlegri áfangaskýrslu og meta framgang þessarar tilraunar.