Almenn ánægja með þjónustu dagforeldra

Skóli og frístund

""

93% foreldra sem nýta sér þjónustu dagforeldra í borginni eru ánægð með hana og mælist ánægja þeirra heldur meiri en undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri könnun skóla- og frístundasviðs.

Foreldrar voru spurðir hversu ánægðir þeir væru með ýmsa þætti sem sneru að daggæslunni. Fram kom almenn ánægja með aðlögun barns, fæði, samskipti við dagforeldra og upplýsingamiðlun eða um 90%. Líkt og í fyrri könnunum eru foreldrar helst óánægðir með kostnað við þjónustu dagforeldra. Einungis 38% fannst hann vera sanngjarn.  Almennar athugasemdir frá foreldrum snéru margar að því að finna þyrfti skilvirkari lausnir á daggæslu yngstu barnanna. Þá fannst foreldrum þörf á að huga enn betur að öryggisatriðum á heimili hjá dagforeldrum og auka eftirlit borgarinnar þannig að það næði til fleiri þátta í starfseminni.

Sjá könnun meðal foreldra barna hjá dagforeldrum í borginni.