Áfram betri Hverfisgata

Umhverfi Framkvæmdir

""

Reykjavíkurborg heldur áfram uppbyggingu og endurnýjun Hverfisgötu og í næstu viku hefjast framkvæmdir við kaflann frá Vitastíg upp að Snorrabraut.  Kynningarfundur verður haldinn á fimmtudag. 

Verkið verður unnið í áföngum til að draga sem mest úr truflun fyrir vegfarendur, íbúa og þjónustuaðila.



Boðað er til kynningarfundar um tilhögun framkvæmda á Hverfisgötu og aðrar stærri framkvæmdir í miðborginni í sumar.   Fundurinn verður fimmtudaginn 13. mars kl. 17 - 18 hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 - 14.  Allir eru velkomnir.



Hverfisgata ofan Vitastígs verður bætt með sama hætti og neðan Vitastígs:  



• Nýtt yfirborð götu og gangstétta.

• Snjóbræðsla í gangstéttum, hjólareinum og gatnamótum.

• Allar lagnir endurnýjaðar.

• Gatnamót steinlögð og lyft í sömu hæð og gangstéttar.

• Hjólareinar beggja vegna götu.

• Upphækkaðar strætóbiðstöðvar auðvelda aðgengi í vagnana.

• Steinlagnir og götutré skapa borgarstemningu.

Endurgerð Pósthússtrætis og hjólastígur meðfram Sæbraut

Auk framkvæmda á Hverfisgötu verða einnig kynntar á fundinum aðrar stærri framkvæmdir í miðborginni:



• Endurgerð Pósthússtrætis milli Austurstrætis og Tryggvagötu.

• Nýr hjólastígur meðfram Sæbraut milli Hörpu og Kringlumýrarbrautar.



Nánari upplýsingar:

Framkvæmdasjá - Hverfisgata milli Vitastígs og Snorrabrautar