Reykjavíkurborg heldur áfram uppbyggingu og endurnýjun Hverfisgötu og í næstu viku hefjast framkvæmdir við kaflann frá Vitastíg upp að Snorrabraut. Kynningarfundur verður haldinn á fimmtudag.
Verkið verður unnið í áföngum til að draga sem mest úr truflun fyrir vegfarendur, íbúa og þjónustuaðila.
Boðað er til kynningarfundar um tilhögun framkvæmda á Hverfisgötu og aðrar stærri framkvæmdir í miðborginni í sumar. Fundurinn verður fimmtudaginn 13. mars kl. 17 - 18 hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 - 14. Allir eru velkomnir.
Hverfisgata ofan Vitastígs verður bætt með sama hætti og neðan Vitastígs:
• Nýtt yfirborð götu og gangstétta.
• Snjóbræðsla í gangstéttum, hjólareinum og gatnamótum.
• Allar lagnir endurnýjaðar.
• Gatnamót steinlögð og lyft í sömu hæð og gangstéttar.
• Hjólareinar beggja vegna götu.
• Upphækkaðar strætóbiðstöðvar auðvelda aðgengi í vagnana.
• Steinlagnir og götutré skapa borgarstemningu.
Endurgerð Pósthússtrætis og hjólastígur meðfram Sæbraut
Auk framkvæmda á Hverfisgötu verða einnig kynntar á fundinum aðrar stærri framkvæmdir í miðborginni:
• Endurgerð Pósthússtrætis milli Austurstrætis og Tryggvagötu.
• Nýr hjólastígur meðfram Sæbraut milli Hörpu og Kringlumýrarbrautar.
Nánari upplýsingar:
Framkvæmdasjá - Hverfisgata milli Vitastígs og Snorrabrautar