Aðgengi fyrir alla á Hverfisgötu

Stjórnsýsla Umhverfi

""

Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra (SEM) hafa gagnrýnt aðgengismál á Hverfisgötu í fjölmiðlum að undanförnu. Samtökin hafa meðal annars bent á slæmt aðgengi hjólastóla og þeirra sem eiga erfitt með gang, sér í lagi við innganga verslana og íbúðarhúsnæðis. Af því tilefni mæltu fulltrúar Reykjavíkurborgar sér mót við Arnar Helga Lárusson formann samtakanna. Endurgerðinni er ekki að fullu lokið og reynt verður að bæta aðgengi þar sem því verður við komið. 

Endurgerð á Hverfisgötu frá Klapparstíg að Vitastíg fól í sér ýmsar aðgerðir til að bæta aðstæður og aðgengi fyrir alla vegfarendur óháð samgönguvenjum og fötlun. Haft var samráð við fulltrúa frá Blindrafélaginu og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga um hönnun. Sérstakar leiðilínur og varúðarsvæði í gönguleiðir á gatnamótum og við strætóbiðstöðvar var eitt af því sem gert var í samráðinu.



Strætóbiðstöðvum við Hverfisgötuna var fjölgað til að stytta gönguvegalengdir að þeim og þær hækkaðar upp með römpum til að auðvelda innstig allra farþega.



Útbúið var sérstakt bílastæði fyrir hreyfihamlaða á kaflanum. Þá eru allar göngu- og hjólaleiðir upphitaðar sem bætir mjög aðstæður allra vegfarenda.



Við hönnun göturýmisins var í megindráttum við það miðað að hæðir við hús yrðu eins og þær voru fyrir framkvæmdir, en frágangi upp við hús er víða ólokið og því tækifæri fyrir húseigendur til bæta aðgengi fyrir hjólastóla.



Reykjavíkurborg aðlagar hæðir við innganga en frágangur við hús á tröppum og römpum er hins vegar alfarið á ábyrgð viðkomandi húseigenda. Ef gera á rampa við inngang í hús þá þarf að leggja inn teikningar af því til samþykktar hjá byggingarfulltrúa en það er á ábyrgð húseiganda. Reykjavíkurborg kemur til móts við óskir húseigenda innan þeirra marka sem raunhæft þykir.



Malbikslag vantar enn í götuna og verður það ekki lagt fyrr en í vor þegar veðuraðstæður leyfa en við það mun aðgengið batna. Öll gatnamót eru upphækkuð og er þar gert ráð fyrir gönguleiðum þar sem kantar eru 2 cm háir. Lengsta vegalengd milli gatnamóta er um 160 m.