Vetrarhátíð 2013 – setning á Austurvelli

Menning og listir

""

Jón Gnarr borgarstjóri setur Vetrarhátíð á Austurvelli  í kvöld kl. 19:30.  Opnunarverkið, „PIXEL CLOUD“ eftir arkitektinn Marcos Zotes, umbreytir Austurvelli í stórbrotna upplifun ljóss, lita og hreyfingar við tónlist Edda Egilssonar, "Cosmos", úr hljómsveitinni Steed Lord.

Að opnun lokinni fara fram  10 tónleikar á 10 stöðum víðs vegar í kringum Austurvöll gestum að kostnaðarlausu. Famina Futura og Una Stefáns verða með tónleika á Hressó, Hide Your Kids troða upp í Hinu Húsinu, Gímaldin spilar íslenskan blús á Íslenska barnum og Jazzkvintett Jóhannu Þórhalls heldur uppi stuði á Restaurant Reykjavík. Kabarettdagskrá verður í boði í Iðnó, í Fríkirkjunni flytur Gerður Bolladóttir vinsælar dægurperlur, austurlenskir tónar munu flæða á Kaffi Haiti, magnþrungið þungarokk verður flutt á kassagítar á Stofunni og Dúettinn Hringanóri syngur þjóðlög í Dómkirkjunni.

Einnig er boðið upp á svefntónleika í myrkvuðum Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík. „Í lok dags er upplagt að leggjast niður og tæma hugann og jafnvel leggja sig undir ljúfum tónum“, segir tónlistarkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir sem ásamt fríðum flokki tónlistarmanna mun syngja á  svefntónleikunum sem hefjast klukkan 21:00 og standa til klukkan 01:00 í Ráðhúsinu.  Dýnur verða á gólfi svo að gestir geti látið fara vel um sig.

Vetrarhátíðin, sem nú er haldin í 11. sinn, stendur til sunnudagsins 10. febrúar. Hátíðin er fjölskylduskemmtun sem einkennist af sköpunargleði, hugkvæmni og listrænni tjáningu. Dagskráin er fjölbreytt og gefst borgarbúum og gestum tækifæri til að taka þátt í henni sér að kostnaðarlausu. Endilega kíkið á dagskrána á www.vetrarhatid.is. Viðburðirnir eru fjölbreyttir og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.