Vegvísir fyrir foreldra - fundur í Langholtsskóla kl. 17.00 í dag

Skóli og frístund

""

Fimmtudaginn 21. nóvember verður haldinn fundur fyrir foreldra í Langholtsskóla undir fyrirsögninni Vegvísir fyrir foreldra. 

Fundurinn, sem hefst klukkan 17.00 er á vegum Samfoks, samtaka foreldrafélaga í Reykjavík og skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. 

Dagskrá 

  1. Foreldravefurinn - upplýsingar fyrir foreldra sem virkir þátttakendur í starfi og námi barna sinna. Steingerður Kristjánsdóttir, verkefnastjóri fagskrifstofu hjá SFS.
  2. Skóla- og frístundaráð, starfshættir og hlutverk áheyrnarfulltrúa - boðleiðir foreldra um krákustíga stjórnkerfis borgarinnar, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri hjá SFS.
  3. Kaffihlé
  4. Vinsamlegt samfélag. Gátlisti: forvarnir, inngrip og úrvinnsla eineltismála - ábyrgð og hlutverk okkar allra. Nanna Kristín Christiansen, verkefnastjóri fagskrifstofu hjá SFS.
  5. Þjónusta við grunnskólanemendur með fjölþættan vanda, kynning á verklagsreglum - leiðir foreldra í leit að stuðningi og lausnum. Guðbjörg Jónsdóttir, ráðgjafi foreldra og skóla hjá SFS.

Hverjum skóla býðst að senda 3 fulltrúa foreldra, stjórnarmenn í foreldrafélagi, skólaráðsfulltrúa eða bekkjarfulltrúa.

Skráning á fundinn: samfok@samfok.is eða í s. 562 7720.