Fimmtudaginn 21. nóvember verður haldinn fundur fyrir foreldra í Langholtsskóla undir fyrirsögninni Vegvísir fyrir foreldra.
Fundurinn, sem hefst klukkan 17.00 er á vegum Samfoks, samtaka foreldrafélaga í Reykjavík og skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
Dagskrá
- Foreldravefurinn - upplýsingar fyrir foreldra sem virkir þátttakendur í starfi og námi barna sinna. Steingerður Kristjánsdóttir, verkefnastjóri fagskrifstofu hjá SFS.
- Skóla- og frístundaráð, starfshættir og hlutverk áheyrnarfulltrúa - boðleiðir foreldra um krákustíga stjórnkerfis borgarinnar, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri hjá SFS.
- Kaffihlé
- Vinsamlegt samfélag. Gátlisti: forvarnir, inngrip og úrvinnsla eineltismála - ábyrgð og hlutverk okkar allra. Nanna Kristín Christiansen, verkefnastjóri fagskrifstofu hjá SFS.
- Þjónusta við grunnskólanemendur með fjölþættan vanda, kynning á verklagsreglum - leiðir foreldra í leit að stuðningi og lausnum. Guðbjörg Jónsdóttir, ráðgjafi foreldra og skóla hjá SFS.
Hverjum skóla býðst að senda 3 fulltrúa foreldra, stjórnarmenn í foreldrafélagi, skólaráðsfulltrúa eða bekkjarfulltrúa.
Skráning á fundinn: samfok@samfok.is eða í s. 562 7720.