Til að bæta öryggi vegfarenda í hálkunni vinna starfsmenn Reykjavíkurborgar nú við að salta og sanda götur, bílastæði, göngustíga og stofnanalóðir. Mjög hált er þar sem klakinn hefur ekki enn náð að bráðna. Farið var af stað klukkan fjögur í nótt og verður unnið áfram í húsagötum í dag.
Borgarbúar geta fengið sand og salt til eigin nota á hverfastöðvum borgarinnar og hafa margir nýtt sér þann möguleika. Hverfastöðvar borgarinnar við Njarðargötu, Flókagötu, Stórhöfða og Jafnasel eru opnar til kl. 17.00 í dag.
Nýju dráttarvélarnar sem keypar voru í byrjun vetrar með búnaði til snjóhreinsunar og söndunar hafa reynst vel. Sjá nánar um búnaðinn í tengdri frétt: Klárir í snjóinn á nýjum dráttarvélum.