Unglingar og vímuefni er yfirskrift fyrsta fundar vetrarins hjá Náum áttum miðvikudaginn 25. september nk. Fjallað er um nýjar rannsóknir um vímuefnaneyslu unglinga auk þess að segja frá vímuefnamarkaðnum.
Á fyrsta fundi Náum áttum á miðvikudaginn kemur, 25. september, verður fjalla um vímuefnamál og unglinga. Á fundinu verður sagt frá nýjum rannsóknum á vímuefnaneyslu unglinga og kíkt er á vímuefnamarkaðinn.
Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknir og greiningu skýrir frá niðurstöðum nýrra rannsókna um vímefnaneyslu unglinga.
Jóhann Skúlason rannsóknarlögreglumaður frá Fíkniefnadeild LRH skýrir frá þeirri mynd sem núna blasir við þeim sem starfa við málaflokkinn en vímuefnamarkaðurinn á Íslandi breytist ört.
Unglingar og vímuefni er stöðugt umfjöllunarefni í samfélaginu en forvarnastarf tekur æ meir mið af rannsóknum á þessu sviði. Í leiðbeinenda og uppeldisstarfi þurfa foreldrar, fagfólk, starfsfólk skóla, heilsugæsla og félagasamtök réttar upplýsingar og fræðslu á hverjum tíma um stöðu þessara mála. Þessi Náum áttum fundur ætti að gefa fólki raunsanna mynd af stöðunni um þessar mundir.
Fundurinn er að venju á Grand hótel. Hann byrjar klukkan 08.15 - 10.00. Þátttökugjald er 1800 krónur og er morgunverður innifalinn í verði. Fundarstjóri að þessu sinni er Rafn Jónsson.
Skráning á fundinn er á heimsíðu Náum áttum.