Þrjár milljónir til 31 verkefnis úr Menningarnæturpotti

Menning og listir

""

Þremur milljónum króna var veitt úr Menningarnæturpotti Landsbankans til 31 verkefnis og viðburða sem fram fara á Menningarnótt. Menningarnæturpottur er samstarfsverkefni Landsbankans og Höfuðborgarstofu en bankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.

Fjárstuðningur Landsbankans vegna samstarfssamnings bankans við Reykjavíkurborg er nýttur til að styrkja beint listamenn og hópa sem koma fram á Menningarnótt. Í ár verður kastljósinu meðal annars beint að Gömlu höfninni og verkefnum sem tengjast henni.

Styrkir úr Menningarnæturpottinum eru á bilinu 50.000 - 200.000 krónur og eru veittir jafnt einstaklingum sem hópum. Tilgangurinn með pottinum er að veita marga en hóflega styrki til einstaklinga og hópa sem vilja skipuleggja frumlega og áhugaverða viðburði á Menningarnótt. Alls bárust 180 umsóknir í ár en aldrei hafa fleiri umsóknir borist. Starfshópur á vegum Höfuðborgarstofu valdi styrkþegana.

Auk stuðnings við þessi verkefni mun Landsbankinn að sjálfsögðu verða með árvissa menningardagskrá í útibúi sínu í Austurstræti á Menningarnótt.

Gakktu í bæinn

Menningarnótt verður haldin í átjánda sinn laugardaginn 24. ágúst næstkomandi. Viðburðir af öllum toga verða haldnir á torgum og götum, í húsasundum og görðum, í galleríum, verslunum, menningarstofnunum og heimahúsum og munu fylla miðborgina lífi. Þema Menningarnætur í ár er „Gakktu í bæinn“ og vísar til þeirrar gömlu íslensku venju að bjóða gesti velkomna og gera vel við þá. Í lok Menningarnætur verður að vanda vegleg flugeldasýning. Höfuðborgarstofa sér um skipulagningu Menningarnætur en samstarfsaðilar eru Landsbankinn og Vodafone.