Þriðjudagsganga í Viðey með Einari Má Guðmundssyni

Menning og listir

""

Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson tekur þriðjudaginn 13. ágúst á móti gestum á hlaðinu við Viðeyjarstofu og spjallar um eyna út frá skáldverkum sínum.

Í þeim skáld­sögum Einars sem tengj­ast Vogahverfinu er Viðey hluti af goð­fræði hverf­is­ins við Sundin og eyjan kemur einnig fyrir í nokkrum ljóða hans. Einar mun ræða um Viðey í þessu skáld­lega sam­hengi og hvernig hún hefur leitað á huga hans, ekki bara sem raun­veru­leiki heldur líka sem skáld­skapur og ævintýri.

Spjallið hefst kl. 19.30 og siglt verður til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu verður opið og upp­lagt að njóta kvöld­verðar í Viðey áður en leið­sögn byrjar eða að fá sér hress­ingu að spjalli loknu áður en haldið er heim á leið, en síð­asta ferjan siglir frá Viðey um kl. 22.00.

Ef illa viðrar færum við okkur inn í Viðeyjarstofu enda er alltaf gott veður þar.

Gjald í ferj­una fram og til baka er kr. 1100,- fyrir full­orðna og kr. 550,- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd full­orð­inna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.

Við minnum á að hand­hafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.