Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða flytur næsta vor

Velferð

""

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða flytur vorið 2014 að Laugavegi 77, en samþykkt hefur verið að taka á leigu alla aðra hæð hússins og hluta þriðju hæðar fyrir starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar.  

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hefur verið til húsa að Skúlagötu 21 um árabil, en umfang starfseminnar hefur vaxið mikið auk þess sem staðsetningin við Laugaveg er  meira miðsvæðis í hverfunum. Þá verður  þjónustumiðstöðin  sýnilegri og aðgengilegri fyrir borgarbúa. Starfsmönnum og verkefnum hefur fjölgað verulega og oft er erfitt að finna starfsaðstöðu. Breytingin gerir starfsmönnum auðveldara að þjóna viðskiptavinum þjónustumiðstöðvarinnar

Leigusamningur er gerður til tíu ára og að loknum nauðsynlegum breytingum mun þjónustumiðstöðin flytja frá Skúlagötu að Laugavegi.  Að sögn framkvæmdastjóra er mikil og almenn ánægja starfsmanna með flutninginn og nýja húsnæðið og er það von allra að sýnileiki þjónustunnar verði meiri með því að færa starfsemina í húsnæði í hjarta miðborgarinnar, við Laugaveginn.

Flutningurinn verður betur kynntur hagsmunahópum og  íbúum hverfanna síðar.