Hið rómaða fyrirtæki Kaffitár hefur falast eftir listaverki frá Söguhring kvenna. Verkið mun vera nota á kaffiumbúðir þeirra og í annað kynningarefni. Konur er hvattar til að mæta og taka þátt í gerð verksins!
Listaverkið Dot.com, sem Söguhringur kvenna bjó til veturinn 2011 - 2012 og hangir nú í Ráðhúsinu, hefur vakið mikla athygli og aðdáun. Kaffitár hefur nú falast eftir því að fá svipað listaverk frá Söguhring kvenna til notkunar á kaffiumbúðir þeirra og í annað kynningarefni.
Verkið verður, eins og Dot.com, unnið með aðferð frumbyggja Ástrala, en aðferðin byggist meðal annars á því að margir vinni í sameiningu að því að skapa listaverk. Þessi aðferð, ásamt hugmyndafræði Söguhrings kvenna, á einkar vel við gildi Kaffitárs, en þau eru ástríða, sérfræðiþekking, alúð og fjölmenning.
Þær konur sem hafa áhuga á verkefninu eru velkomnar á kynningarfund laugardaginn 17. ágúst kl. 13.30 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Vinnan við gerð listaverksins hefst á sama tíma.
Haldið verður áfram við gerð verksins eftirfarandi daga:
18. ágúst, kl. 13.30
31. ágúst, kl. 13.30
1. september, kl. 13.30
7. september, kl. 13.30
8. september, kl. 13.30
14. september, kl. 13.30
15. september, kl. 13.30
Ekki er nauðsynlegt að mæta í öll skiptin. Vert er að benda á að til stendur að taka hluta af vinnuferlinu upp á myndband, en engin verður þó með á myndbandinu nema að undanfengnu samþykki.
Að launum fyrir verkið mun Kaffitár styrkja Söguhring kvenna til áframhaldandi starfs og verkefna.