Sumri fagnað
Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur víðs vegar um borgina á fimmtudaginn þann 25. apríl næstkomandi. Margt verður í boði í hverfum borgarinnar eins og sjá má hér að neðan.
Álftamýri og Háaleiti
11.00 - 13.00 Sumarhátíð við Tónabæ/Álftabæ.
Grillaðar pylsur og ávaxtasafa í boði
Hoppukastala - útileikir
Andlitsmálningu og skemmtiatriði í boði barnanna og unglinganna í Álftabæ, Tónabæ og Krakkakoti
Árbær
10.00 - 12.00 Frítt í Árbæjarlaug
Sundsumba og tónlist í boði Árbæjarþreks kl. 10.30.
12.00 Skrúðganga frá Árbæjarlaug
Gengið að Árbæjarkirkju (Upp Fylkisveg að Rofabæ og Rofabæinn að Árbæjarkirkju).
12.30 Fjölskylduhelgistund í Árbæjarkirkju af tilefni sumarkomu.
Sumrinu fagnað með söng og brúðuleik.
13.00 - 15.00 Sumarhátíð á Árbæjartorgi
Tónlist á sviði - hljómsveitirnar „Út í bláinn“ og „4 og ½“ spila.
Andlitsmálun
Hoppukastalar
Æskulýðsfélagið sakÚL verður með pylsu- og vöfflusölu til styrktar unglingastarfi Árbæjarkirkju.
Candyfloss
Kökubasar
14.00 - 16.00 Skátar úti og inni - Hraunbæ 123
Hjá skátafélaginu Árbúum er hægt að fara í póstaleik, grilla útilegubrauð og klifra í trönum. Kíkja á skátaheimilið og styrkja skáta með því að kaupa candyfloss, kökur og kaffi.
Bústaðahverfi
12.00 Grillað við Grímsbæ
Berserkir grilla í boði 10-11
Skrúðganga frá Grímsbæ að Bústaðakirkju undir taktfastri tónlist Skólahljómsveitar Austurbæjar,fánaberar úr röðum Víkinga
13.00 – Dagskrá í Bústaðakirkju
Línudans í boði Hæðargarðs. Yngri kórar kirkjunnar
stíga á stokk
13.00 – Víkingshlaupið
Hlaupið verður frá horni Túngötu og Garðastrætis að Víkinni.Skráning og afhending þátttökunúmera verður við rásmarkið frá klukkan 13.00 - 13.25 og verður hlaupið ræst klukkan 13.30. Ekkert þátttökugjald er í hlaupið!
13.40 Skemmtidagskrá í Víkinni
Sumargrín ÍTR – Hoppukastalar – Bílar og búnaður
Flugbjörgunarsveitarinnar – Víkingshlaupið
– Ratleikur – Andlitsmálun – Kökur og kaffi –
Myndasýning leikskólanna – Blöðrumaðurinn –
Söngatriði: Yellow void, fulltrúar Réttarholtsskóla á Samfés, söngatriði úr Fossvogsskóla, söngatriði úr Neðstalandi, söngatriði frá Sólbúum
Breiðholt
11.00 – 14.00 Fjölskylduskemmtun í Hólmaseli
ÍRingar verða á staðnum og kynna sumarstarfið sitt.
Skátafélagið Segull verður með apabrú yfir andapollinn og kynningu á sumarnámskeiðum.
Seldar verðar pylsur, gos og candyfloss.
Hljómsveitir, Hoppukastali og andlitsmálning. Íbúar Latabæjar mæta kl. 12 og Eyþór Ingi um kl. 13.
Grafarholt
10.00 Víðavangshlaup Fram
Hlaupið er frá Ingunnarskóla 7,7 km og 3 km. Verðlaun eru boði fyrir efstu sætin.
10.00 – 12.00 Veiðikeppni í Reynisvatni.
Veiðikeppni við Reynisvatn í samvinnu Reynisvatns og íbúasamtaka Grafarholts.
Verð kr. 800.- á veiðistöng – innifalið tveir veiddir fiska.
Verðlaun fyrir stærstu fiskana, veiðimenn hafa tvo tíma til að tryggja sér stærsta fiskinn.
11.00 Dýrablessun í Guðríðarkirkju.
12.30 Skrúðganga frá Þórðarsveig 3 að Guðríðarkirkju
13.00 Helgistund í Guðríðarkirkju
13.30 Skemmtun í Ingunnarskóla og við Grafarholtstorg.
Bingó, kökubasar og veitingasala á vegum Fram. Bingóspjald kostar 500 kr.
Hoppukastali við Guðríðarkirkju.
Leiktæki.
Krítað á kirkjustétt.
Útileikir.
Bókamarkaður Guðríðarkirkju
Grafarvogur
11.30 Skrúðganga frá Spöng að Rimaskóla.
Skólahljómsveit Grafarvogs og Skátafélagið Hamar
11.45 - 14.00 Fjölbreytt dagskrá í og við Rimaskóla:
Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Grafarvogi, Tónskóla Hörpunnar og félagsmiðstöðvum Gufunesbæjar
Töframaður
Danssýning frá Dansskóla Ragnars
Söng- og dansatriði frá frístundaheimilum Gufunesbæjar í tilefni af Barnamenningarhátíð
Kynningar á sumarstarfi Gufunesbæjar, Fjölnis o.fl.
Leiktæki
Street hokký - skautafélagið Björninn - Gott að vera á línuskautum
Veitingasala
Andlitsmálun
Langholts- og Vogahverfi
11.00 - 13.00 Sumarhátíð í Þróttheimum í boði Vogasels, Buskans, Glaðheima og Þróttheima
Brjóstsykursgerð
Andlitsmálun
Útileikir og krítar
Grillaðar pylsur og svali á boðstólunum
Miðborg/Hlíðar
Afhjúpun á útilistaverki við Kjarvalsstaði. Allir velkomnir
12.00 - 14.00 Fjölskylduskemmtun á Klambratúni.
Dótakassann býður upp á leikföng til útláns fyrir alla fjölskylduna
Hoppukastali
Veitingasala á vegum útskriftarhóps Háteigsskóla
Flökkusýningin Kjarval og Gullmávurinn á Kjarvalsstöðum
13.00 - 17.00 Ljósmyndasýning á vegum Kamps í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Grófarhúsi Tryggvagötu 15.
Börn í Frístundabrú Kamps sýna ljósmyndir sem teknar eru á myndavélar sem börnin bjuggu sjálf til og framkölluðu ljósmyndirnar undir leiðsögn Sigurðar Gunnarssonar.
Vesturbær
10.00 – 12.00 Hólavallagarður – gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu
Heimir B. Janusson og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða rölt um kirkjugarðinn og segja frá hinu og þessu fróðlegu
Kl.11.00 Skrúðganga frá Melaskóla
Lúðrasveit Reykjavíkur blæs hátíðina af stað og Ægisbúar leiða gönguna að Frostaskjóli þar sem fjölbreytt dagskrá og afþreying er í boði.
Kl.11.30 - 14.00 Fjölskylduskemmtun við Frostaskjól úti
Leikhópurinn Lotta, Lalli töframaður, DJ, tónlistaratriði, útieldunarsmiðja fyrir fjölskylduna, veitingasala, sýning á málverkum Eddu Heiðrúnar Bachman og margt fleira.
Kl.11.30 - 13.30 Afþreying fyrir yngri kynslóðina verður inni
Þrautabraut og Hoppukastali verða inni í KR. Andlitsmálning uppi við inngang Frostaskjóls. Lalli töframaður verður á ferðinni með blöðrur handa börnunum.
10.00 - 18.00 Ljósmyndasýning Borgarsmiðju tíu12 í Vesturbæjarlaug
Íbúar eru eindregið hvattir til að skilja bílinn eftir heima!