Sumri fagnað

Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur víðs vegar um borgina á fimmtudaginn þann 25. apríl næstkomandi. Margt verður í boði í hverfum borgarinnar eins og sjá má hér að neðan.

Álftamýri og Háaleiti

11.00 - 13.00  Sumarhátíð við Tónabæ/Álftabæ.

Grillaðar pylsur og ávaxtasafa í boði

Hoppukastala - útileikir

Andlitsmálningu og skemmtiatriði í boði barnanna og unglinganna í Álftabæ, Tónabæ og Krakkakoti

Árbær

10.00 - 12.00 Frítt í Árbæjarlaug

Sundsumba og tónlist í boði Árbæjarþreks kl. 10.30.

12.00  Skrúðganga frá Árbæjarlaug

Gengið að Árbæjarkirkju (Upp Fylkisveg að Rofabæ og Rofabæinn að Árbæjarkirkju).

12.30  Fjölskylduhelgistund í Árbæjarkirkju af tilefni sumarkomu.

Sumrinu fagnað með söng og brúðuleik.

13.00 - 15.00 Sumarhátíð á Árbæjartorgi

Tónlist á sviði - hljómsveitirnar „Út í bláinn“ og „4 og ½“ spila.

Andlitsmálun

Hoppukastalar

Æskulýðsfélagið sakÚL verður með pylsu- og vöfflusölu til styrktar unglingastarfi Árbæjarkirkju.

Candyfloss

Kökubasar

14.00 - 16.00 Skátar úti og inni - Hraunbæ 123

Hjá skátafélaginu Árbúum er hægt að fara í póstaleik, grilla útilegubrauð og klifra í trönum. Kíkja á skátaheimilið og styrkja skáta með því að kaupa candyfloss, kökur og kaffi.

Bústaðahverfi

12.00   Grillað við Grímsbæ

Berserkir grilla í boði 10-11

Skrúðganga frá Grímsbæ að Bústaðakirkju undir taktfastri tónlist Skólahljómsveitar Austurbæjar,fánaberar úr röðum Víkinga

13.00 –  Dagskrá í Bústaðakirkju

Línudans í boði Hæðargarðs. Yngri kórar kirkjunnar

stíga á stokk

13.00 –  Víkingshlaupið

Hlaupið verður frá horni Túngötu og Garðastrætis að Víkinni.Skráning og afhending þátttökunúmera verður við rásmarkið frá klukkan 13.00 - 13.25 og verður hlaupið ræst klukkan 13.30. Ekkert þátttökugjald er í hlaupið!

13.40   Skemmtidagskrá í Víkinni

Sumargrín ÍTR – Hoppukastalar – Bílar og búnaður

Flugbjörgunarsveitarinnar – Víkingshlaupið

– Ratleikur – Andlitsmálun – Kökur og kaffi –

Myndasýning leikskólanna – Blöðrumaðurinn –

Söngatriði: Yellow void, fulltrúar Réttarholtsskóla á Samfés, söngatriði úr Fossvogsskóla, söngatriði úr Neðstalandi, söngatriði frá Sólbúum

Breiðholt

11.00 – 14.00    Fjölskylduskemmtun í Hólmaseli

ÍRingar verða á staðnum og kynna sumarstarfið sitt.

Skátafélagið Segull verður með apabrú yfir andapollinn og kynningu á sumarnámskeiðum.

Seldar verðar pylsur, gos og candyfloss.

Hljómsveitir, Hoppukastali og andlitsmálning. Íbúar Latabæjar mæta kl. 12 og Eyþór Ingi um kl. 13.

Grafarholt

10.00  Víðavangshlaup Fram

Hlaupið er frá Ingunnarskóla 7,7 km og 3 km.  Verðlaun eru boði fyrir efstu sætin.

10.00 – 12.00    Veiðikeppni í Reynisvatni.

Veiðikeppni við Reynisvatn í samvinnu Reynisvatns og íbúasamtaka Grafarholts.

Verð kr. 800.- á veiðistöng – innifalið tveir veiddir fiska.

Verðlaun fyrir stærstu fiskana, veiðimenn hafa tvo tíma til að tryggja sér stærsta fiskinn.

11.00  Dýrablessun í Guðríðarkirkju.

12.30  Skrúðganga frá Þórðarsveig 3 að Guðríðarkirkju

13.00  Helgistund í Guðríðarkirkju

13.30  Skemmtun í Ingunnarskóla og við Grafarholtstorg.            

Bingó, kökubasar og veitingasala á vegum Fram. Bingóspjald kostar 500 kr.

Hoppukastali við Guðríðarkirkju.

Leiktæki.

Krítað á kirkjustétt.

Útileikir.

Bókamarkaður Guðríðarkirkju

Grafarvogur

11.30  Skrúðganga frá Spöng að Rimaskóla.   

Skólahljómsveit Grafarvogs og Skátafélagið Hamar

11.45 - 14.00  Fjölbreytt dagskrá í og við Rimaskóla:

Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Grafarvogi, Tónskóla Hörpunnar og félagsmiðstöðvum Gufunesbæjar

Töframaður

Danssýning frá Dansskóla Ragnars

Söng- og dansatriði frá frístundaheimilum Gufunesbæjar í tilefni af Barnamenningarhátíð

Kynningar á sumarstarfi Gufunesbæjar, Fjölnis o.fl.

Leiktæki

Street hokký - skautafélagið Björninn - Gott að vera á línuskautum

Veitingasala

Andlitsmálun    

Langholts- og Vogahverfi

11.00 - 13.00   Sumarhátíð í Þróttheimum í boði Vogasels, Buskans, Glaðheima og Þróttheima

Brjóstsykursgerð

Andlitsmálun

Útileikir og krítar

Grillaðar pylsur og svali á boðstólunum

Miðborg/Hlíðar

Afhjúpun á útilistaverki við Kjarvalsstaði. Allir velkomnir

12.00 - 14.00  Fjölskylduskemmtun á Klambratúni.

Dótakassann býður upp á leikföng til útláns fyrir alla fjölskylduna

Hoppukastali

Veitingasala á vegum útskriftarhóps Háteigsskóla

Flökkusýningin Kjarval og Gullmávurinn á Kjarvalsstöðum

13.00 - 17.00  Ljósmyndasýning á vegum Kamps í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Grófarhúsi Tryggvagötu 15.

Börn í Frístundabrú Kamps sýna ljósmyndir sem teknar eru á myndavélar sem börnin bjuggu sjálf til og framkölluðu ljósmyndirnar undir leiðsögn Sigurðar Gunnarssonar. 



Vesturbær

10.00 – 12.00 Hólavallagarður – gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu

Heimir B. Janusson og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða rölt um kirkjugarðinn og segja frá hinu og þessu fróðlegu

Kl.11.00 Skrúðganga frá Melaskóla

Lúðrasveit Reykjavíkur blæs hátíðina af stað og Ægisbúar leiða gönguna að Frostaskjóli þar sem fjölbreytt dagskrá og afþreying er í boði.

Kl.11.30 - 14.00  Fjölskylduskemmtun við Frostaskjól úti

Leikhópurinn Lotta, Lalli töframaður, DJ, tónlistaratriði, útieldunarsmiðja fyrir fjölskylduna, veitingasala, sýning á málverkum Eddu Heiðrúnar Bachman og margt fleira.

Kl.11.30 - 13.30  Afþreying fyrir yngri kynslóðina verður inni

Þrautabraut og Hoppukastali verða inni í KR.  Andlitsmálning uppi við inngang Frostaskjóls. Lalli töframaður verður á ferðinni með blöðrur handa börnunum.

10.00 - 18.00 Ljósmyndasýning Borgarsmiðju tíu12 í Vesturbæjarlaug

Íbúar eru eindregið hvattir til að skilja bílinn eftir heima!