Þessa dagana standa yfir skólaslit í grunnskólum Reykjavíkur og eru þeir síðustu mánudaginn 10. júní næstkomandi. Nemendur sem stunduðu nám í grunnskólunum í vetur voru um 14 þúsund og fá þeir nú kærkomið sumarfrí við leik og störf eftir annasaman vetur.
Um 1400 nemendur eru að klára 10. bekk og þeirra bíða nú ný verkefni hvort sem er í námi eða í starfi og verður leið þeirra fram á við vonandi farsæl. Svipaður fjöldi, eða riflega 1400, nýir nemendur hefja nám í 1. bekk í haust. Krakkarnir ganga vafalaust prúð og frjálsleg í fasi á vit nýrra tíma.
Við óskum nemendum og starfsfólki gleðilegs sumars.