Salsaveisla í Viðey 17. september

Menning og listir

""

Slegið verður upp salsaveislu í Naustinu í Viðey þriðjudaginn 17. september. Allir eru velkomnir og það er ekki nauðsynlegt að taka með sér dansfélaga. Þeir sem eru með tvo vinstri fætur þurfa ekki að örvænta því Eddu Blöndal og Pál Sigurðsson, þaulreyndir salsakennarar frá SalsaIceland, munu kenna grunnsporin.

SalsaIceland er félag áhugafólks um salsa og salsadansskóli. Kennararnir þeirra eru snillingar í að hrífa fólk með sér í hinn ástríðufulla heim salsadansins. Þau bjóða okkur upp á prufutíma fyrir byrjendur kl. 20:00 og kenna salsasporin í um klukkustund. Eftir það ættu allir að vera tilbúnir til þess að taka smá snúning á dansgólfinu.

Siglt verður frá Skarfabakka kl. 19:15 og til baka um 22:00. Ferjutollur er 1.100 kr. fyrir siglinguna fram og til baka.

Við minnum á að þeir sem eru með Menningarkortið fá 2 fyrir 1 í ferjuna í september og 2 fyrir 1 af kaffi í Viðeyjarstofu en annars 10% af veitingum.