Börn á frístundaheimilum Frostaskjóls halda árlega dag sem helgaður er UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og málefnum barna um heim allan.
Áheitasöfnun krakkanna í Selinu til styrktar Unicef skilaði góðum árangri, en þeim tókst að safna 215.000 krónum. Þau fóru þannig að þau fóru í þrautabraut með átta stöðvum á skólalóð Melgaskóla og söfnuðu áheitum frá foreldrum og ættingjum fyrir hvern hring í brautinni. Meðal þess sem þau spreyttu sig á í brautinni var boltakast, spretthlaup og kastalaklifur. Þau stóðu sig afar vel í þrautabrautinni og margir fóru fleiri en einn og tvo hringi.
Það var því líf og fjör hjá þessum kröftugu krökkum og fjölskyldum þeirra þegar safnað var fyrir góðum málstað.