Hlutfall nagladekkja í Reykjavík reyndist 28% á móti 72% naglalausum í talningu sem gerð var 14. nóvember sl. Í fyrra var hlutfallið svipað eða 26% á móti 74%. Hlutfall sóts úr bílum og aska hefur aukist verulega í svifryki.
Reykjavíkurborg lætur reglulega kanna hlutfallið milli negldra og ónegldra hjólbarða. Undanfarna vetur hefur hlutfall negldra dekkja hæst farið í 34-36% í febrúar og mars en slík dekk eru aðeins leyfileg í borginni tímabilinu 1. nóvember til 15. apríl.
Ókostir við nagladekk í borgum er að þau spæna malbik upp hundraðfalt meira en önnur dekk og veldur það svifryksmengun í lofti, margfaldar kostnað við viðhald gatna auk hávaðamengunar.
Ábyrgð og gætni við akstur er langbesta forvörnin í umferðinni ásamt því að leggja mat á hvort ástæða sé að hvíla bílinn heima og fara með strætó, gangandi eða hjólandi sé kostur á því.
Sót frá bílum eykst í andrúmslofti
Ný rannsókn Vegagerðarinnar í sammvinnu við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur á samsetningu svifryks í lofti sýnir að hlutfall malbiks í svifryki hefur lækkað úr 55% í 17% en aftur á móti hefur hlutfall sóts farið úr 7% í 30%. Skýringin gæti verið að bílaflotinn á höfuðborgarsvæðinu hefur frá árunum 1999-2002 til upphafs árs 2013 aukist um 27,8 %. Þá hefur hlutfall díselbíla einnig aukist en sótmengun frá díselbílum er meiri en frá bensínbílum.
Svifryk hefur farið níu sinnum á þessu ári yfir sólarhrings-heilsuverndarmörkin sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Aska mældist ekki í svifryki þegar sambærilega könnun var gerð árið 2003 en mælist nú 18%.
Tengill: