Rösklega brugðist við í snjóhreinsun

Snjóhreinsun hefur gengið vel í Reykjavík bæði á götum sem og á gönguleiðum. Snemma í morgun var 10 - 25 cm jafnfallinn snjór í Reykjavík, um 10 cm í vesturhluta borgarinnar og 25 cm austan Elliðaáa.  Mannskapur var ræstur út í nótt með um 30 bíla og tæki. Stærri ruðningstæki fóru á helstu stofnleiðir og dráttavélar með snjóruðningsbúnað á gönguleiðirnar.

Ákveðið var að fara einnig í húsagötur í Grafarvogi, Úlfarsárdal, Grafarholti, Árbæ og Breiðholti, sem og húsagötur austan Snorrabrautar. Beðið verður átekta með að fara í húsagötur vestan Snorrabrautar en þar féll minni snjór og jafnframt er spáð hlýnandi á morgun og á mánudag. ,,Við tökum þó stöðuna síðar í dag og förum í Vesturbæinn ef þörf krefur á morgun,“ segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir skrifstofustjóri rekstrar og þjónustu borgarlandsins hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Dráttarvéladeild borgarinnar, sem annast snjóhreinsun á gönguleiðum í austurhluta borgarinnar, var með allar nýju vélarnar sjö sem og þrjár vélar frá verktökum á gönguleiðunum í nótt á skilgreindum stofnbrautum. (Rauðmerktar leiðir á snjóhreinsunarkorti). Í framhaldinu var svo byrjað á almennum leiðum, stígum inn í hverfunum og útivistarsvæðum. 

 

Mjög hefur gengið á saltbirgðirnar í Reykjavík en næsta skip með salt kemur ekki að landi fyrr en á mánudagskvöldið.  Þá kemur sér vel að eiga góða granna og lána Hafnfirðingar salt í dag.

 

ÍTAREFNI:



Kort - Snjóhreinsun og hálkueyðing gatna.

Kort - Snjóhreinsun og söndun gönguleiða.