Rösklega brugðist við í snjóhreinsun
Snjóhreinsun hefur gengið vel í Reykjavík bæði á götum sem og á gönguleiðum. Snemma í morgun var 10 - 25 cm jafnfallinn snjór í Reykjavík, um 10 cm í vesturhluta borgarinnar og 25 cm austan Elliðaáa. Mannskapur var ræstur út í nótt með um 30 bíla og tæki. Stærri ruðningstæki fóru á helstu stofnleiðir og dráttavélar með snjóruðningsbúnað á gönguleiðirnar.
Ákveðið var að fara einnig í húsagötur í Grafarvogi, Úlfarsárdal, Grafarholti, Árbæ og Breiðholti, sem og húsagötur austan Snorrabrautar. Beðið verður átekta með að fara í húsagötur vestan Snorrabrautar en þar féll minni snjór og jafnframt er spáð hlýnandi á morgun og á mánudag. ,,Við tökum þó stöðuna síðar í dag og förum í Vesturbæinn ef þörf krefur á morgun,“ segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir skrifstofustjóri rekstrar og þjónustu borgarlandsins hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.
Dráttarvéladeild borgarinnar, sem annast snjóhreinsun á gönguleiðum í austurhluta borgarinnar, var með allar nýju vélarnar sjö sem og þrjár vélar frá verktökum á gönguleiðunum í nótt á skilgreindum stofnbrautum. (Rauðmerktar leiðir á snjóhreinsunarkorti). Í framhaldinu var svo byrjað á almennum leiðum, stígum inn í hverfunum og útivistarsvæðum.
Mjög hefur gengið á saltbirgðirnar í Reykjavík en næsta skip með salt kemur ekki að landi fyrr en á mánudagskvöldið. Þá kemur sér vel að eiga góða granna og lána Hafnfirðingar salt í dag.