Riddari götunnar í 50 ár

Framkvæmdir Samgöngur

""

Guðni Hannesson ætti að þekkja gatnakerfið í Reykjavík nokkuð vel því hann hefur unnið að þeim málum hjá Reykjavíkurborg í 50 ár.  Hann hóf störf 3. nóv. 1963 þá 19 ára gamall og þó hann eigi starfsafmæli kemur fyrst að starfslokum á næsta ári. 

Í morgun var glatt á hjalla á vinnustað Guðna, Þjónustumiðstöðinni á Stórhöfða. Samstarfsmenn Guðna héldu hóf honum til heiðurs. Jón Gnarr borgarstjóri færði Guðna bókagjöf í tilefni starfsafmælisins og Guðjóna Björk skrifstofustjóri reksturs og umhirðu færði Guðna sérútbúinn notendavænan gylltan Tetra-síma til eignar. Til að kóróna gleðina og stemninguna mætti Ari Eldjárn með uppistand meðal annars um starfsmannamál og gildi. 
 

Byrjaði í Grjótmulningsstöðinni

Fyrsta starfið var í Grjótmulningsstöð Reykjavíkurborgar og ætlaði hann sér aðeins  að vera þar einn vetur. Guðni segir oft í gríni að þegar hann réði sig til starfa við mulningsvélina þá hafi hann gert það af fúsum og frjálsum vilja ólíkt því sem gerist annars staðar í heiminum þar sem aðeins fangar vinni slík störf.  
 
Í framhaldinu bauðst honum vinna á mokstursvél í Malbikunarstöð Reykjavíkurborgar sem þá var nýtekin til starfa og þar var hann í 14 ár.  Hjá Malbikunarstöðinni var á þeim tíma byrjað kl. 6 á morgnana og unnið til kl. 21 alla virka daga í maí til september. Á laugardögum var aðeins unnið stutt, frá kl. 6 til 17.
 

Verkstjóri yfir gatnahreinsun

Eftir það vann hann á veghefli í eitt ár og síðan á dráttarbíl hjá  Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar og  fólst starfið aðallega í götuþvotti og efnisflutningum. Guðni sinnti því starfi til ársins 1988 en þá var hann gerður að verkstjóra yfir gatnahreinsun og hefur verið  það allar götur síðan og er einn þeirra sem stendur snjóvaktina fyrir Reykvíkinga.  
 
Guðni  segir að alltaf hafi honum liðið vel í starfi og  hlakkað til að fara í vinnuna.