Jón Gnarr borgarstjóri, Björn Gíslason, formaður íþróttafélagsins Fylkis, og Pétur Guðmundsson, forstjóri Eyktar, skrifuðu á föstudaginn undir samninga vegna byggingar áhorfendaaðstöðu við knattspynuvöll Fylkis við Fylkisveg í Árbæ.
Reykjavíkurborg styrkir framkvæmdina um 90 milljónir króna á næstu tveimur árum en Eykt annast framkvæmdina fyrir Fylki. Framkvæmdir eru hafnar og er áætlað að þeim ljúki fyrir vorið.
Með þessari aðstöðu mun Fylkir uppfylla kröfur KSÍ um aðstöðu fyrir áhorfendur á knattspyrnuvöllum þeirra félaga sem spila í úrvalsdeild. KSÍ styrkir Fylki einnig vegna framkvæmdarinnar.