Reykjavíkurborg styrkir íþróttafélagið Fylki um 90 milljónir

Íþróttir og útivist

""

Jón Gnarr borgarstjóri, Björn Gíslason, formaður íþróttafélagsins Fylkis, og Pétur Guðmundsson, forstjóri Eyktar, skrifuðu á föstudaginn undir samninga vegna byggingar áhorfendaaðstöðu við knattspynuvöll Fylkis við Fylkisveg í Árbæ. 

Reykjavíkurborg styrkir framkvæmdina um 90 milljónir króna á næstu tveimur árum en Eykt annast framkvæmdina fyrir Fylki. Framkvæmdir eru hafnar og  er áætlað að þeim ljúki fyrir vorið.

Með þessari aðstöðu  mun Fylkir uppfylla kröfur KSÍ um aðstöðu  fyrir áhorfendur á knattspyrnuvöllum þeirra félaga sem spila í úrvalsdeild. KSÍ styrkir  Fylki einnig vegna framkvæmdarinnar.