ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Óskað eftir tilnefningum til nemendaverðlauna
Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir yfirstandandi skólaár verða afhent í Hagaskóla 22. maí. Óskað er eftir tilnefningum skóla til verðlaunanna, en hver grunnskóli tilnefnir einn nemanda.
Markmið nemendaverðlaunanna er að hvetja nemendur til að leggja sig enn betur fram í námi, félagsstarfi eða í skapandi starfi. Hvatt er til þess að starfsmenn skóla, foreldrafélag og skólaráð svo og nemendafélag taki þátt í vali innan skólans.
Nemendaverðlaunin eru m.a. veitt fyrir:
- Góðan námsárangur, almennt eða í tiltekinni grein.
- Góðar framfarir í námi, almennt eða í tiltekinni grein.
- Virkni í félagsstarfi, að vera góð fyrirmynd, að sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika.
- Frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum, s.s. skák, boltaíþróttum, frjálsum íþróttum, dansi, myndlist, tónlist.
- Listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, s.s. í myndlist, tónlist, leiklist, handmennt, dansi, upplestri.
- Félagslega færni, samskiptahæfni og sérstakt framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda.
-
Nýsköpun og/eða hönnun, s.s. smíði, hannyrðir, tæknimennt.