Óskað eftir tilnefningum til nemendaverðlauna

Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir yfirstandandi skólaár verða afhent  í Hagaskóla 22. maí. Óskað er eftir tilnefningum skóla til verðlaunanna, en hver grunnskóli tilnefnir einn nemanda.

Markmið nemendaverðlaunanna er að hvetja nemendur til að leggja sig enn betur fram í námi, félagsstarfi eða í skapandi starfi. Hvatt er til þess að starfsmenn skóla, foreldrafélag og skólaráð svo og nemendafélag taki þátt í vali innan skólans. 



Nemendaverðlaunin eru  m.a. veitt fyrir:

  • Góðan námsárangur, almennt eða í tiltekinni grein.
  • Góðar framfarir í námi, almennt eða í tiltekinni grein.
  • Virkni í félagsstarfi, að vera góð fyrirmynd, að sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika.
  • Frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum, s.s. skák, boltaíþróttum, frjálsum íþróttum, dansi, myndlist, tónlist.
  • Listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, s.s. í myndlist, tónlist, leiklist, handmennt, dansi, upplestri.
  • Félagslega færni, samskiptahæfni og sérstakt framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda.
  • Nýsköpun og/eða hönnun, s.s. smíði, hannyrðir, tæknimennt.