Nýtnivikan verður haldin hér á landi vikuna 16. - 24. nóvember en markmið vikunnar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Vikan er samevrópsk og er ætlað að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs m.a. með því að lengja líftíma hluta, samnýta hluti og stuðla almennt að því að hlutir öðlist framhaldslíf frekar en að enda sem úrgangur.
Daglegar venjur hvers og eins hefur áhrif á umhverfið. Til dæmis er hægt að draga verulega úr pappírsúrgangi með því að afþakka fjöldapóst, endurnýta gjafapappír og draga úr prentun. Úrgangur frá heimilum í Reykjavík sem ekki er flokkaður frá og endurnýttur eða endurnotaður er urðaður í Álfsnesi.
Margt ber á góma hjá Reykjavíkurborg í Nýtniviku. Efnt verður til samkeppni um Best nýtta pappírinn en leikurinn verður á Facebook síðu Reykjavíkurborgar, en þar geta allir tekið þátt og sett inn mynd af pappír eða pappa sem er vel nýttur eða fengið hefur nýtt hlutverk. Einnig stendur til að endurvekja gömul orð en í ár fellur Dagur íslenskrar tungu inn í Nýtnivikuna og það felur í sér ýmis tækifæri til að tengja þetta tvennt saman. Við gætum t.d. farið að nota aftur orð eins og spónamatur og jarðepli svo eitthvað sé nefnt. Þátttakendur sendi hugmynd inn myndrænt, orðið og þýðingu þess, ný eða gömul. Listasmiðja barna verður í Norræna húsinu en þar skapa börn list úr pappír.
Reykjavíkurborg tekur þátt í Nýtnivikunni auk Kvenfélagasambands Íslands, Neytendasamtökunum, Sorpu, Landvernd og Umhverfisstofnun ásamt öðrum sveitarfélögum á Íslandi og í Evrópu. Vikan verður helguð meiri nýtni á pappír og að dregið sé úr myndun pappírsúrgangs. Vikan er líka tækifæri okkar til að skora á önnur sveitarfélög, fyrirtæki, vini og ættingja til að vinna verkefni sem tengjast nýtni og draga úr bruðli og úrgangi í samfélaginu.
Reykjavíkurborg hvetur til betri nýtingu hluta og vitundarvakningar um að nýta og njóta þess sem í kringum okkur er. Hér að neðan eru nokkur heilræði sem hægt er að styðjast við.
Nægjusemi - Skoðaðu vandlega hvort þörf er fyrir viðkomandi vöru áður en hún er keypt. Sumir segja að það sé góð regla að bíða í 30 daga ef þörfin er enn til staðar þá má fyrst skoða málið að alvöru.
Nýtni - Hér áður var nýtni svo mikil að engu mátti henda sem að gagni gat komið. Nýttu vel það sem keypt hefur verið, það er gott fyrir budduna og umhverfið. Á vef Kvenfélagasambands Íslands www.leidbeiningastod.is má finna ýmis ráð til að nýta betur mat, viðhalda húsbúnaði, ná blettum úr fötum og margt fleira nytsamlegt.
Minni umbúðir -Veldu vörur sem hafa viðaminni umbúðir en aðrar og vörur í umbúðum sem auðvelt er að flokka og skila til endurvinnslu. Með því skapar þú sem neytandi eftirspurn eftir slíkum vörum.
Endurunnar og umhverfismerktar vörur - Margar vörur innihalda endurunnar afurðir og með því að velja fremur slíkar vörur hvetur þú til endurvinnslu. Umhverfismerktar vörur eru einnig í boði í mörgum verslunum. Kynntu þér umhverfismerkingar á www.ust.is.
Endurnotkun og fjölnota vörur -Við framleiðslu og flutning á flestum vörum sem við kaupum hafa losnað gróðurhúsalofttegundir. Með því að nota taupoka við innkaup í stað plastpoka sparar þú orku og auðlindir sem fara í að framleiða pokana.
Jarðgerð -Með því að jarðgera matarleifar á réttan hátt og annað sem fellur til af lífrænum úrgangi í garðinum og á heimilinu getur þú dregið úr urðun og fengið um leið góðan lífrænan áburð til að nota í garðinum.