ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Nauthólsvík hentar aftur til sjósunds
Niðurstöður mælinga úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þann 22. apríl sl. sýna að saurgerlamengun er ekki lengur yfir viðmiðunarmörkum í Nauthólsvík. Heilbrigðiseftirlitið varaði við sjósundi í Nauthólsvík, dagana 15. - 22. apríl sl., vegna viðgerða í fráveitudælustöðinni við Hafnarbraut í Kópavogi, Því er í góðu lagi að stinga sér til sunds á þessum slóðum á nýjan leik.
Ljósmyndin var tekin í liðinni viku og sýnir mengunarflekk sem berst frá dælustöðinni í Kópavogi.