Nauthólsvík hentar aftur til sjósunds

Niðurstöður mælinga úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þann 22. apríl sl. sýna að saurgerlamengun er ekki lengur yfir viðmiðunarmörkum í Nauthólsvík. Heilbrigðiseftirlitið varaði við sjósundi í Nauthólsvík, dagana 15. - 22. apríl sl., vegna viðgerða í fráveitudælustöðinni við Hafnarbraut í Kópavogi, Því er í góðu lagi að stinga sér til sunds á þessum slóðum á nýjan leik.

 Ljósmyndin var tekin í liðinni viku og sýnir mengunarflekk sem berst frá dælustöðinni í Kópavogi.